Við erum Dagný Sara og Róbert Orri
Dagný Sara fædd á sjúkrahúsinu Akranesi 22. jan 2006 kl.1:16 Foreldranir áttu nú ekki von á henni fyrr en 3. febrúar en eitthvað langaði dömunni að koma í heiminn fyrr ;) Hún var 50 cm og 3390 gr. eða 13 og hálf mörk. Háralitur er ljósskol og augnlitur blár. Hún er voða kát og skemmtileg stelpa með ýmis áhugamál eins og að lesa bækur, hoppa og skoppa og blaðra við allt og alla :)

Róbert Orri er fæddur í sjúkrabíl á Miklubrautinni Rvk 1. maí 2011 kl. 12:40. Hann var víst að flýta sér svo mikið í heiminn að hann gat ekki beðið í nokkrar mínútur þar til foreldrarnir væru búnir að koma sér uppá LSH. Hann var 49 cm og 3270 gr eða 13 merkur. Hárlitur ljósskol og augnlitur dökkgrár. Hann er að sjálfsögðu mjög kátur gæi en áhugamálin eru helst að láta aðra dáðst að sér og halda á sér. Einnig er allt í heiminum mjög spennandi þar sem hann er nú bara rétt að kynnast honum ennþá.

Þórunn Björk og Viðar með Dagný á skírnardaginn hennar.
Kristófer Daði
Berglind Huld
Kristbjörg Sunna
Katrín Einarsdóttir
Sigmar Valur
Bryndís og Lovísa


